Organisti
Tuuli Rähni
Organisti og píanóleikari sem er fædd í Tallinn og lauk þar píanónámi við Tónlistarmenntaskólann árið 1986. Hún útskrifaðist frá Eistnesku tónlistarakademíunni árið 1991 og lærði þar hjá Peep Lassmann. Meistaraprófi lauk hún árið 1997 við Tónlistarháskólann í Karlsruhe, í píanóeinleik hjá G. Hauer og í kammertónlist hjá W. Genuit. Árin 1997 til 2005 bjó hún í Kyoto, hélt tónleika og kenndi á píanó við konservatoríið þar. Árið 2005 fluttist hún með fjölskyldu sinni til Íslands og lauk orgeleinleiks- og kantórsnámi við Tónskóla Þjóðkirkjunnar hjá Birni Steinari Sólbergssyni. Hún er reglulegur gestur á Orgelsumri í Hallgrímskirkju og hefur leikið á orgelsumri í Dómkirkjunni í Tallinn, í Lüneburg, Bremerhaven og Hannover og í Hasselt í Belgíu. Hún hefur samið tónlist fyrir orgel, hljóðritað fyrir útvarp og sjónvarp í Þýskalandi og Eistlandi og gefið út geisladiska.
Framundan

Hádegistónleikar: Tuuli Rähni
Hallgrímskirkja, Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík
3.200 kr.