Söngkona
Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir
Söngkona sem býr í Kaupmannahöfn og Reykjavík og hefur einkum lagt fyrir sig frumflutning nýrrar tónlistar. Hún lauk burtfararprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík hjá Þórunni Guðmundsdóttur og Sigrúnu Hjálmtýsdóttur og síðan bakkalár- og meistaragráðu frá Konunglega danska tónlistarháskólanum í Kaupmannahöfn hjá Hönnu Hjort og Marianne Rørholm. Í febrúar 2026 hélt hún útskriftartónleika sína úr einsöngsdeild skólans, þar sem Helene Gjerris var kennari hennar. Hún er einnig með BA-próf í íslensku og mannfræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur frumflutt óperur eftir Mathias Vestergård, Finn Karlsson og Helga Rafn Ingvarsson, auk einsöngs- og kammerverka, og sungið Dido eftir Purcell og Ariodante eftir Händel. Árið 2025 söng hún í BRÍM, nýrri óperu Friðriks Margrétar-Guðmundssonar, í Tjarnarbíói. Hún hefur sungið einsöng með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Århus Sinfonietta og BIT20 Ensemble og komið fram á hátíðunum Bang on a Can og Tête à Tête. Hún syngur í KIMI ensemble og í dúettinum Gjörð með Björgu Brjánsdóttur flautuleikara.
Framundan
Ekkert framundan.
Aðrir flytjendur
Saman á sviði: KIMI ensemble: Þagnarómur
KIMI ensemble