Harmóníkuleikari
Jónas Ásgeir Ásgeirsson
Harmóníkuleikari, búsettur í Kaupmannahöfn, sem lauk meistaragráðu og framhaldsgráðu frá Konunglega danska tónlistarháskólanum hjá Geir Draugsvoll og Andreas Borregaard. Árið 2016 varð hann fyrstur Íslendinga til að leika harmóníkukonsert með Sinfóníuhljómsveit Íslands, sem einn sigurvegara Ungra einleikara. Á Myrkum músíkdögum 2024 lék hann tvo konserta á sömu tónleikum með hljómsveitinni, Installation Around a Heart eftir Þuríði Jónsdóttur og harmóníkukonsert Finns Karlssonar, sem saminn var fyrir hann. Hann vinnur náið með tónskáldum og leggur sérstaka áherslu á nýja íslenska tónlist fyrir hljóðfærið. Dacapo gaf út plötu hans Fikta árið 2022, með konserti Finns, Radioflakes eftir Atla Ingólfsson og verkum eftir Þorkel Sigurbjörnsson og Atla Heimi Sveinsson sem ekki höfðu verið hljóðrituð áður. Fikta var valin plata ársins og Jónas flytjandi ársins í flokki sígildrar og samtímatónlistar á Íslensku tónlistarverðlaununum fyrir árið 2022. Hann stofnaði KIMI ensemble og leikur einnig í harmóníkutríóinu ítríó, sem vann kammertónlistarkeppni danska tónlistarháskólans, og í dúóinu EKKI MINNA með sellóleikaranum Andrew Power.
Framundan
Ekkert framundan.
Aðrir flytjendur
Saman á sviði: KIMI ensemble: Þagnarómur
KIMI ensemble