← Allir listamenn

KIMI ensemble

Tríó söngkonu, harmóníkuleikara og slagverksleikara, stofnað í Kaupmannahöfn árið 2018. Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir syngur, Jónas Ásgeir Ásgeirsson leikur á harmóníku og Katerina Anagnostidou á slagverk. Tríóið leikur einkum ný verk samin fyrir þessa óvenjulegu samsetningu, auk eigin útsetninga á þjóðlögum frá Íslandi og Grikklandi, heimalöndum þeirra. Það hefur unnið með tónskáldum á borð við Finn Karlsson, Þuríði Jónsdóttur, Huga Guðmundsson og Christos Farmakis. Sumarið 2020 var það staðarhópur Sumartónleika í Skálholti. Það hefur einnig leikið á Feneyjatvíæringnum, NJORD-tvíæringnum og Vinterjazz í Kaupmannahöfn og frumflutt verk í Bandaríkjunum, Grikklandi og á Ítalíu. Árið 2022 gaf Dacapo út hljóðritun tríósins á Bittersweet, verki sem samið var fyrir það.

Framundan

Ekkert framundan.

Aðrir flytjendur