← Allir listamenn

Skálholtskórinn

Kór sem dr. Róbert Abraham Ottósson söngmálastjóri stofnaði fyrir vígslu nýrrar dómkirkju í Skálholti árið 1963. Hann er kór dómkirkjunnar, og í honum syngur áhugafólk á öllum aldri úr Skálholtsprestakalli og nágrenni. Hann leiðir sönginn við hátíðleg tækifæri og syngur á tónleikum í kirkjunni á jólum og páskum, á aðventu og á Skálholtshátíð. Á eftir Róberti stjórnuðu honum Glúmur Gylfason og Hilmar Örn Agnarsson, dómorganisti frá 1991 til 2008, og frá árinu 2009 hefur Jón Bjarnason dómorganisti stjórnað honum. Kórinn hefur meðal annars flutt Skálholtskantötu Páls Ísólfssonar, Gloriu eftir Vivaldi og Brynjólfsmessu Gunnars Þórðarsonar, sungið á listahátíð í Piran í Slóveníu árið 2003 og haldið tónleika í Þýskalandi, Frakklandi og á Ítalíu.

Framundan

Ekkert framundan.

Aðrir flytjendur