Sinfóníuhljómsveit Tónlistarskóla Hafnarfjarðar
Sinfóníuhljómsveit Tónlistarskóla Hafnarfjarðar er skipuð nemendum skólans sem lokið hafa grunnnámi eða eru langt komnir með það, og Ármann Helgason hefur stjórnað henni frá upphafi. Hún lék fyrst saman vorið 2016, þá skipuð 35 nemendum. Vorið 2018 frumflutti hún í Hafnarborg verk Þorbjargar Roach Gunnarsdóttur fyrir sögumann og hljómsveit, byggt á ævintýri H.C. Andersens um Tindátann staðfasta. Hún hefur haldið tónleika í Cuxhaven, vinabæ Hafnarfjarðar í Þýskalandi, með hljómsveit Amandus Abendroth-menntaskólans þar í bæ, og vorið 2025 var hún eina íslenska hljómsveitin á RITMIKS, hátíð tónlistarskólahljómsveita í Barcelona og víðar í Katalóníu.
Framundan
Maxímús Músíkús heimsækir hljómsveitina
Kaldalón, Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík
Ókeypis
Aðrir flytjendur

Saman á sviði: Maxímús Músíkús heimsækir hljómsveitina
Ármann Helgason
Klarínettuleikari
Næst: 17. des.



