← Allir listamenn

Sinfóníuhljómsveit áhugamanna

Hljómsveit sem stofnuð var haustið 1990 og hefur starfað óslitið síðan. Flestir sem í henni leika hafa atvinnu af öðru, og hún er einnig vettvangur nemenda og tónlistarkennara. Starfið er ólaunað og alls hafa meira en tvö hundruð manns leikið með henni. Starfsárið er frá september til maí og æft er eitt kvöld í viku í Seltjarnarneskirkju. Efnisskráin er einkum sótt til klassíska tímans en hljómsveitin flytur einnig nýrri verk og hefur frumflutt fjölda íslenskra tónverka. Hún heldur fimm til sjö tónleika á ári, hefur starfað með mörgum kórum og gefið út þrjá hljómdiska. Ingvar Jónasson var listrænn leiðtogi hennar frá upphafi til ársins 2005, þegar Oliver Kentish tók við.

Framundan

Aðrir flytjendur