Sinfóníuhljómsveit Austurlands
Hljómsveit sem sjö hljóðfæraleikarar á Austurlandi stofnuðu á Reyðarfirði 10. maí 2018. Hún hélt fyrstu tónleika sína 1. desember sama ár, á aldarafmæli fullveldisins, í Tónlistarmiðstöð Austurlands á Eskifirði undir stjórn Zigmas Genutis. Hún gefur hljóðfæraleikurum, einsöngvurum og kórum á Austurlandi færi á að koma fram með sinfóníuhljómsveit, lengra komnum nemendum tækifæri til að leika í henni og tónskáldum landshlutans vettvang fyrir hljómsveitarverk. Flestir hljóðfæraleikararnir eru af Austurlandi en liðsauki kemur að norðan og úr Reykjavík. Meðal stjórnenda hennar hafa verið Guðmundur Óli Gunnarsson og Gunnsteinn Ólafsson, og í apríl 2026 frumflutti hún saxófónkonsertinn Dichotomies eftir Wes Stephens á Eskifirði með Guido Bäumer sem einleikara.
Framundan
Ekkert framundan.


