← Allir listamenn

Hljómsveitarstjóri

Oliver Kentish

Hljómsveitarstjóri og sellóleikari sem fæddist í Lundúnum árið 1954 og stundaði framhaldsnám í sellóleik við Royal Academy of Music þar í borg. Hann kom til Íslands árið 1977 til að leika með Sinfóníuhljómsveit Íslands í afleysingum og hefur kennt hér síðan, nú við Nýja tónlistarskólann í Reykjavík. Hann hefur fylgt Sinfóníuhljómsveit áhugamanna nánast frá stofnun hennar, fyrst sem sellóleikari, og tók við sem aðalstjórnandi og listrænn stjórnandi hennar árið 2005. Hann er tónskáld og félagi í Tónskáldafélagi Íslands og á um þrjú hundruð verk á skrá hjá Íslenskri tónverkamiðstöð. Árið 1994 pantaði breska ríkisstjórnin hjá honum verk að gjöf til íslensku þjóðarinnar á fimmtíu ára afmæli lýðveldisins: Mitt fólk, fyrir barítón og hljómsveit, tileinkað Vigdísi Finnbogadóttur, þáverandi forseta. Verk hans hafa verið flutt víða um Evrópu, í Bandaríkjunum og í Rússlandi.

Framundan

Aðrir flytjendur