← Allir listamenn

Leikstjóri

Pálína Jónsdóttir

Íslenskur leikhús- og óperuleikstjóri. Hún lauk meistaragráðu í leikstjórn frá Columbia-háskóla í New York árið 2017 undir leiðsögn Anne Bogart og Brians Kulick, framhaldsdiplómu í samtímadansi frá CNSMD í Lyon, leikaranámi frá Leiklistarskóla Íslands og diplómanámi á meistarastigi í leiklistarkennslu frá Listaháskóla Íslands, og stundaði nám við Söngskólann í Reykjavík og nám í bókmenntum og heimspeki við Háskóla Íslands. Haustið 2019 stofnaði hún alþjóðlega leikhópinn Reykjavík Ensemble ásamt Ewu Marcinek. Reykjavíkurborg útnefndi hópinn Listhóp Reykjavíkur árið 2020 og Grímunefnd tilnefndi hann sem Sprota ársins sama ár. Fyrir Óperudaga hefur hún leikstýrt Trouble in Tahiti eftir Bernstein, The Little Match Girl Passion og Death Speaks eftir David Lang, The Telephone, Ragnarök: örlög goðanna og nú Röddum rafmagna. Hún hefur einnig leikstýrt Ég heiti Guðrún eftir Rikke Wölck í Þjóðleikhúsinu og Í hennar skóm eftir Svanlaugu Jóhannsdóttur í Tjarnarbíó. Hún er einnig leikari og hefur meðal annars leikið May í Footfalls eftir Beckett, Ungfrú Júlíu, Solveigu í Pétri Gaut og Snæfríði í Íslandsklukkunni, og í kvikmyndum á borð við Djöflaeyjuna.

Framundan

Ekkert framundan.

Aðrir flytjendur