Sópran
Margrét Hrafnsdóttir
Íslenskur sópran. Hún lauk 8. stigs prófi í söng og 8. stigi í píanóleik frá Tónlistarskóla Reykjavíkur, þar sem söngkennarar hennar voru Sieglinde Kahmann, Hrefna Eggertsdóttir og Selma Guðmundsdóttir. Þaðan hélt hún til Þýskalands og lauk söngkennara- og einsöngvaradiplómu sem og diplómu í ljóðasöng frá Tónlistarháskólanum í Stuttgart, og hefur sótt námskeið hjá Anne Sofie von Otter og Christoph Pregardien. Hún hefur hlotið styrk frá Wagnerfélaginu í Stuttgart, Hlaðvarpanum og Tónlistarsjóði og hefur fengið listamannalaun. Margrét hefur haldið einsöngstónleika í Þýskalandi, Sviss, Ítalíu, Danmörku og Svíþjóð með efnisskrám sem spanna allt frá sjaldheyrðum verkum að þjóðlögum og margbreytilegri leikhús- og óperutónlist, og hefur meðal annars frumflutt lög eftir Ingibjörgu Azima, Oliver Kentish og Steingrím Þórhallsson. Árið 2007 gaf hún út plötuna Hjartahljóð með sellóleikaranum Ólöfu Sigursveinsdóttur með íslenskum þjóðlögum. Árið 2015 kom út platan Vorljóð á Ýli með tónlist Ingibjargar Azima í útsetningum fyrir óvenjulega kammersveit með fagotti, harmonikku, klarínetti, kontrabassa og sellói, og í október 2026 kemur út diskurinn LOGN, einnig með tónlist Ingibjargar. Á óperusviðinu hefur hún sungið Freyju í Þrymskviðu eftir Jón Ásgeirsson og Nornina í Ár og öld eftir Þórunni Guðmundsdóttur.
Framundan
Ekkert framundan.
