Gítarleikari
Óskar Magnússon
Óskar er íslenskur klassískur gítarleikari, fæddur árið 1989. Hann steig sín fyrstu skref sem rafgítarleikari ungur að aldri, lék í ýmsum hljómsveitum og lærði einnig á bassa og trommur, en um tvítugt sneri hann sér að klassískum gítarleik. Hann lauk B.Mus-gráðu frá Listaháskóla Íslands árið 2017 og meistaragráðu frá San Francisco Conservatory of Music tveimur árum síðar. Óskar hefur komið víða fram sem einleikari og tekið þátt í gítarhátíðum eins og Cordoba Guitar Festival á Spáni, Forum Guitar Festival í Vínarborg og Florida Guitar Foundation í Miami, og árið 2018 hlaut hann fyrsta sæti í gítarkeppninni Gohar and Ovanes Guitar Competition í Los Angeles. Hann er annar helmingur Magma gítardúósins ásamt Svani Vilbergssyni, og hefur útsett og flutt bæði klassísk gítarverk og íslensk nútímaverk sem skrifuð hafa verið sérstaklega fyrir dúóið.
Framundan
Ekkert framundan.