Tenór
Kristján Jóhannsson
Óperusöngvari, tenór, fæddur á Akureyri 24. maí 1948. Hann hóf söngnám tvítugur við Tónlistarskóla Akureyrar hjá Sigurði Demetz og fór síðan til Ítalíu til náms við Conservatorio Nicolini í Piacenza hjá Gianni Poggi og í einkatíma hjá Ettore Campogalliani og Ferruccio Tagliavini. Hann þreytti frumraun sína á sviði árið 1980 í Il tabarro og Gianni Schicchi eftir Puccini í Teatro Piccolo la Fenice í Osimo á Ítalíu. Hann hefur sungið við Cincinnati Opera (frumraun 1985), La Scala (frumraun 1988 í I due Foscari), Lyric Opera of Chicago (frumraun 1989 í Tosca), Vínaróperuna (frumraun 1991 í Tosca), Metropolitan-óperuna í New York (frumraun 1993 í Il trovatore) og Konunglegu óperuna í Covent Garden (frumraun 1994 í Aidu). Hann er einkum þekktur fyrir hlutverk í óperum Verdis og þó einkum Radames í Aidu.
Framundan

Í tunglsljósi á ís: nýárstónleikar
Hof, Norðurland eystra, Akureyri
Frá 5.900 kr.≈ 43 EUR≈ 47 $≈ 68 CAD≈ 36 GBP≈ 321 DKK


