← Allir listamenn

Bassi

Kristinn Sigmundsson

Óperusöngvari, bassi, fæddur 1. mars 1951. Hann lauk BS-prófi í líffræði frá Háskóla Íslands og starfaði um skeið sem framhaldsskólakennari áður en hann sneri sér að söng. Hann lærði hjá Guðmundi Jónssyni í Söngskólanum í Reykjavík og síðar við Tónlistar- og leiklistarháskólann í Vín hjá Helene Karusso, Christian Möller og Wolfgang Gabriel. Að loknu námi starfaði hann við Hessisches Staatstheater í Wiesbaden og hóf lausamennsku árið 1992. Hann syngur reglulega við Metropolitan-óperuna, Covent Garden, Þjóðaróperuna í París, Vínaróperuna, Óperuna í München og Semperoper í Dresden, og meðal hljómsveitarstjóra sem hann hefur unnið með eru James Levine, Riccardo Muti, Colin Davis, Bernard Haitink, Charles Mackerras, Christoph von Dohnányi, Christoph Eschenbach og Marc Minkowski. Af hljóðritunum hans má nefna Töfraflautuna og Don Giovanni undir stjórn Arnolds Östman, Jóhannesarpassíu og Matteusarpassíu Bachs undir stjórn Frans Brüggen, Vetrarferð Schuberts bæði með Jónasi Ingimundarsyni og síðar með Víkingi Ólafssyni, og óperu Johns Corigliano, The Ghost of Versailles.

Framundan

Aðrir flytjendur