← Allir listamenn

Kórstjóri

Jóhann Baldvinsson

Íslenskur organisti og kórstjóri, fæddur á Akureyri árið 1957. Hann hóf tónlistarnám sjö ára við Tónlistarskólann á Akureyri og lauk þaðan námi árið 1984, þegar hann fluttist til Reykjavíkur og hóf nám við Kennaraháskóla Íslands og Tónlistarskólann í Reykjavík. Þaðan hélt hann til Aachen í Þýskalandi og lagði stund á framhaldsnám í kór- og hljómsveitarstjórn, og árið 1987 fluttist hann aftur til Akureyrar þar sem hann starfaði sem organisti og kórstjóri við Glerárkirkju til ársins 1997. Það ár fluttist hann í Garðabæ og tók við starfi organista og kórstjóra við Vídalínskirkju og Garðakirkju, þar sem hann starfaði samfellt í tuttugu og níu ár uns hann settist í helgan stein sumarið 2026 og við tók Agnar Már Magnússon. Hann tók við Garðakórnum, kór eldri borgara í Garðabæ, árið 2005 og stjórnar honum enn, og var ein af driffjöðrunum í því að safna fé og kaupa nýtt orgel í Vídalínskirkju árið 2013. Hann hlaut heiðursviðurkenningu Garðabæjar árið 2022 fyrir störf sín í þágu menningar og Garðasteininn, viðurkenningu Rótarýklúbbsins Garða, árið 2023.

Framundan

Aðrir flytjendur