← Allir listamenn

Sópran og hljómsveitarstjóri

Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir

Söngkona og hljómsveitarstjóri sem lauk meistaragráðu í söng frá Konunglega tónlistarháskólanum í Stokkhólmi árið 2023, útskrifaðist úr Malko-hljómsveitarstjóraakademíunni í Kaupmannahöfn árið 2024, þar sem hún stjórnaði Dönsku þjóðarhljómsveitinni, og lauk hljómsveitarstjóranámi við Tónlistarháskólann í Ósló vorið 2026. Hún syngur og stjórnar samtímis, og fyrir Pierrot lunaire eftir Schönberg á Óperudögum 2024 var hún tilnefnd bæði sem söngvari ársins og flytjandi ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum 2025. Árið 2023 var hún þar útnefnd Bjartasta vonin. Hún leikur reglulega á fiðlu í Sinfóníuhljómsveit Íslands og hefur stjórnað henni í upptökum, á hádegistónleikum og barnastundum. Hún stjórnar Nordic Opera Choir, sem heldur tónleika víða á Norðurlöndum.

Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir í svörtum bol á glerklæddum gangi.
Mynd: Dominik Falenski, DR

Framundan