← Allir listamenn

Hljómeyki

Söngflokkurinn Hljómeyki er íslenskur kammerkór sem var stofnaður árið 1974 af nokkrum söngvurum úr Pólýfónkórnum. Fyrsti stjórnandi hans var Ruth L. Magnússon. Verkefni kórsins hafa frá upphafi verið fjölbreytt, allt frá kórtónlist endurreisnarinnar til rokktónlistar, og árið 1986 hóf hann samstarf við Sumartónleika í Skálholti sem stóð í þrjá áratugi; á þeim tíma frumflutti kórinn tugi verka eftir mörg af helstu tónskáldum landsins. Hljómeyki hefur gefið út sex geisladiska með verkum eftir íslensk tónskáld á borð við Hjálmar H. Ragnarsson, Þorkel Sigurbjörnsson, Báru Grímsdóttur, Jón Nordal og Sigurð Sævarsson, og hefur tekið þátt í flutningi á óperunum Dídó og Eneas eftir Purcell, Orfeusi og Evridís eftir Gluck, Orfeo eftir Monteverdi, La Clemenza di Tito eftir Mozart, Carmen eftir Bizet og Porgy og Bess eftir Gershwin. Kórinn hefur unnið með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og rokkhljómsveitunum Todmobile, Sólstöfum, Dimmu, Skálmöld og Dúndurfréttum. Núverandi stjórnandi hans er Þorvaldur Örn Davíðsson.

Framundan

Ekkert framundan.

Aðrir flytjendur