← Allir listamenn

Tónskáld og hljómsveitarstjóri

Stefan Sand

Stefan er dansk-íslenskur tónlistarmaður, fæddur í Kaupmannahöfn árið 1995, búsettur í Reykjavík. Hann lauk prófi í píanóleik og píanókennslu frá Konunglega danska tónlistarháskólanum árið 2017 og voru kennarar hans þar Jens Elvekjær og Søren Rastogi. Að því loknu hélt hann til Reykjavíkur og lauk meistaraprófi á brautinni Sköpun, miðlun og frumkvöðlastarf við Listaháskóla Íslands árið 2021 og meistaraprófi í tónsmíðum frá sama skóla árið 2023, þar sem kennarar hans voru Úlfar Ingi Haraldsson, Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson og Tryggvi M. Baldvinsson. Samhliða náminu stundaði hann hljómsveitarstjórn hjá Frederik Støvring Olsen og Gunnsteini Ólafssyni og kórstjórn hjá Magnúsi Ragnarssyni. Stefan starfar sem tónskáld og kórstjóri og stjórnar kórunum Hljómeyki, Mótettukórnum og kvennakórnum Vox Feminae. Meðal stærri verkefna hans á sviði hljómsveitarstjórnar eru óperurnar Fidelio og Töfraflautan og Messa í C-dúr eftir Beethoven. Verkefnið Look at the Music, sem hann vinnur ásamt Thomas Hammel og Hauk Darra Haukssyni, sameinar heyrandi og heyrnarlaust fólk og notar táknmál sem efnivið tónsmíða, og árið 2024 var hann tilnefndur til Grímuverðlauna sem Sproti ársins fyrir störf sín í íslensku menningarlífi. Hann kennir píanó við tónlistarskólana í Árbæ og Kópavogi.

Stefan Sand brosandi í bláum jakka.

Framundan

Ekkert framundan.