← Allir listamenn

Skólakór Kársnesskóla

Barnakór Kársnesskóla í Kópavogi, sem hóf göngu sína haustið 1975. Um áttatíu börn skráðu sig þá í kórinn, þau yngstu átta ára og þau elstu tólf, og stjórnandinn, Þórunn Björnsdóttir, var tuttugu og eins árs. Hún stjórnaði kórnum í fjörutíu ár; Álfheiður Björgvinsdóttir starfaði með henni frá 2015 og tók svo við honum. Kórastarfið er hluti af stundatöflu nemenda í þriðja til sjöunda bekk, svo öll börn skólans læra að syngja í kór. Fyrstu tónleikarnir voru á jólaskemmtun skólans árið 1975 og síðan hefur kórinn sungið um allt land, átt náið samstarf við Kópavogskirkju og ferðast til Kanada, Japans og víða um Evrópu. Fyrsta platan, Fögnuður, kom út árið 1983. Mörg íslensk tónskáld hafa samið verk sérstaklega fyrir kórinn.

Framundan