Víóluleikari
Herdís Anna Jónsdóttir
Víóluleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands frá 1995, fædd á Akureyri árið 1962. Hún lærði á fiðlu við Tónlistarskólann á Akureyri og lauk fiðlukennaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1986, þar sem kennarar hennar á fiðlu og víólu voru Michael Shelton og Helga Þórarinsdóttir. Síðan nam hún víóluleik við Tónlistarháskólann í Stuttgart hjá Enrique Santiago, Manfred Schumann og Hermann Voss og kammertónlist hjá Melos-kvartettinum og lauk þaðan prófi vorið 1992. Meðan hún bjó í Þýskalandi lék hún með ýmsum hljómsveitum, þar á meðal Konzertensemble Salzburg. Auk Sinfóníuhljómsveitarinnar hefur hún leikið með Íslensku óperunni, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og SinfoniaNord og í kammerhópum á borð við Kammersveit Reykjavíkur, Caput og Dísurnar. Með eiginmanni sínum, slagverksleikaranum Steef van Oosterhout, myndar hún Dúó Stemmu, sem IBBY á Íslandi veitti viðurkenningu árið 2008 fyrir framlag til barnamenningar.
Framundan
Ekkert framundan.
Aðrir flytjendur
Saman á sviði: Dúó Stemma brokkar
Dúó Stemma

