← Allir listamenn

Dúó Stemma

Í Dúó Stemmu leika víóluleikarinn Herdís Anna Jónsdóttir og slagverksleikarinn Steef van Oosterhout, sem eru hjón og leika bæði í Sinfóníuhljómsveit Íslands. Dúóið varð til þegar kennararnir á Dvergasteini, leikskóla barna þeirra, báðu þau að gera eitthvað fyrir börnin. Þar hafa þau reynt hvert verk sitt fyrst. Þau leika íslensk þjóðlög, þulur og kvæði á víólu og slagverk, en líka á skyrdós, skeiðar og hrossakjálka og á steinaspil sem Páll Guðmundsson myndlistarmaður á Húsafelli gerði handa þeim. Hljóðsöguna um Jón bónda hafa þau leikið í meira en hundrað leikskólum og skólum á Íslandi og í Hollandi. Síðan bættist við sagan um Fíu frænku. Haustið 2010 léku þau fyrir börn í Færeyjum og á Grænlandi í vestnorrænu skólaverkefni. Snorri Sigfús Birgisson samdi handa þeim Fimm lög frá Gautlöndum, og Áskell Másson og Sveinn Lúðvík Björnsson hafa einnig samið fyrir þau. Í október 2017 frumfluttu þau í Salnum verk sitt Veturkarlinn kominn er. Í nóvember 2019 héldu þau fjölskyldutónleika í Konzerthaus Berlin. Árið 2008 veitti IBBY á Íslandi Dúó Stemmu Vorvinda, viðurkenningu sína fyrir framlag til barnamenningar.

Framundan

Ekkert framundan.

Aðrir flytjendur