← Allir listamenn

Píanóleikari

Fern Nevjinsky

Franskur píanóleikari, bókmenntafræðingur og sálgreinir, fædd í París árið 1946. Hún lauk doktorsprófi í sálfræði frá Université Paris V árið 1988 og starfaði um árabil sem dósent í klínískri sálfræði við Háskólann í Rúðuborg, auk þess að starfa sem sálgreinir og vera félagi í GIREP, alþjóðlegum samtökum sálgreinenda. Á miðjum aldri hóf hún nám í norrænum bókmenntum við Sorbonne-háskóla og lauk doktorsprófi frá Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands 11. september 2009 fyrir ritgerðina Désir et passion dans l'œuvre dramatique de Jóhanns Sigurjónsson, þ.e. Þrá og ástríða í leikverkum Jóhanns Sigurjónssonar. Ritgerðin var rituð á frönsku með ítarlegu ágripi á íslensku og lögð fram samtímis við Háskóla Íslands og Université Paris IV – Sorbonne samkvæmt samstarfssamningi skólanna frá 2003, og voru leiðbeinendur hennar prófessor Torfi H. Tulinius og prófessor Marc Auchet. Hún leikur reglulega á hádegistónleikum í Hafnarfjarðarkirkju á kórorgel smíðað af Kristian Wegscheider í miðþýskum barokkstíl.

Framundan

Ekkert framundan.

Aðrir flytjendur