← Allir listamenn

Nýja tríó Reykjavíkur

Píanótríó sem Herdís Mjöll Guðmundsdóttir fiðluleikari, Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir sellóleikari og Liam Kaplan píanóleikari stofnuðu árið 2025. Það ber nafn Tríós Reykjavíkur, sem festi píanótríóhefðina í sessi hér á landi, og ætlar sér að halda þeirri hefð áfram. Í maí 2025 léku þau þrjú saman í Salnum í Kópavogi, kynnt sem nýtt píanótríó. Á efnisskránni voru síðara píanótríó Schuberts, Frederic, nýtt verk eftir Liam Kaplan, og píanótríó Clöru Schumann. Á Menningarnótt 2026 hélt tríóið hádegistónleika í Norðurljósum í Hörpu með köflum úr Dumky-tríói Dvořáks og útsetningum Kaplans á íslenskum sönglögum, meðal annars Hríslunni og læknum og Nú andar suðrið sæla, og í september sama ár lék það verk eftir Dvořák, Jennifer Higdon og Hafliða Hallgrímsson í Hannesarholti.

Framundan

Aðrir flytjendur