Básúnuleikari og hljómsveitarstjóri
Dave Panichi
Ástralskur básúnuleikari, tónskáld og útsetjari. Hann fæddist og ólst upp í Sydney og fluttist árið 1981 til New York, þar sem hann bjó í átján ár, en sneri aftur til Sydney árið 2000. Á árum sínum í Bandaríkjunum lék hann með stórsveit Buddys Rich, Toshiko Akiyoshi, Blood Sweat & Tears, Frank Sinatra, Söru Vaughan, Aretha Franklin, Mel Tormé, Bob Mintzer, Maria Schneider, Slide Hampton, Dave Liebman, Mulgrew Miller og Marc Copland. Verk hans og útsetningar hafa verið flutt og hljóðrituð af stórsveit Buddys Rich, Village Vanguard-hljómsveitinni, Blood Sweat & Tears, James Morrison, Jazzgroove Mothership Orchestra, stórsveit Ralphs Pyl í Sydney, Ten Part Invention og danskri útvarpsstórsveit. Árið 2017 hljóðritaði hann DVD-diskinn Paradigm í New York með eigin verkum og útsetningum fyrir stórsveit, og árið 2025 kom út platan The London Sessions, hljóðrituð í London með Callum Au Big Band. Hljóðrit af deilum þeirra Buddys Rich um skegg hans rataði í sjónvarpsþáttinn Seinfeld.
Framundan
Ekkert framundan.
