← Allir listamenn
Básúnuleikari
Jón Arnar Einarsson
Leiðari básúnudeildar Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Hann hóf tónlistarnám sjö ára gamall í lúðrasveit í úthverfi Óslóar, fluttist síðar til Íslands og hélt áfram námi á básúnu í Skólahljómsveit Grafarvogs hjá Sigurði Þorbergssyni. Hjá sama kennara lauk hann námi við Tónlistarskóla FÍH árið 2017 og hélt þaðan til Norges Musikkhøgskole, þar sem kennarar hans voru Jonas Bylund og Sverre Riise. Í Noregi lék hann meðal annars með Oslo Philharmonic og Norwegian Radio Orchestra. Hann sigraði í keppninni Ungir einleikarar árið 2020 og lék í kjölfarið einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Meistaraprófi lauk hann árið 2023 og hóf störf hjá hljómsveitinni sama haust, fastráðinn frá 2024.
Framundan
Ekkert framundan.