Píanóleikari
Anna Gréta Sigurðardóttir
Píanóleikari, söngkona og tónskáld, fædd á Íslandi árið 1994, sem hefur búið í Stokkhólmi frá 2014. Hún lærði fyrst klassískan píanóleik en sneri sér síðan að djassi. Haustið 2014 hóf hún nám við Konunglega tónlistarháskólann í Stokkhólmi. Hún var valin bjartasta vonin í djass- og blústónlist á Íslensku tónlistarverðlaununum. Árið 2019 hlaut hún styrk úr sjóði sem kenndur er við sænsku djasssöngkonuna Monicu Zetterlund. Árið eftir var hún meðal tónlistarmanna sem komu fram við afhendingu Nóbelsverðlaunanna í Stokkhólmi. Fyrsta sólóplata hennar, Nightjar in the Northern Sky, kom út hjá þýsku útgáfunni ACT haustið 2021. Á henni söng hún í fyrsta sinn. Bæði lög og textar eru hennar. Platan var valin djassplata ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum og hún sjálf lagahöfundur ársins í djassi. Árið 2022 hlaut hún Ystad Jazz Piano Award á djasshátíðinni í Ystad. Önnur plata hennar hjá ACT, Star of Spring, kom út árið 2024. Í þremur laganna leikur faðir hennar, Sigurður Flosason, á bassaklarínett.
Framundan
Ekkert framundan.
