← Allir viðburðir
Sinfóníuhljómsveit Íslands 2026–27 · Sinfóníutónleikar
Chamayou leikur Ravel
Umsjón: Sinfóníuhljómsveit Íslands
Barbara Hannigan stjórnar og syngur. Bertrand Chamayou leikur á píanó. Chamayou er staðarlistamaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands starfsárið 2026–27. Þrjú af fjórum tónskáldum kvöldsins eru frönsk. Les Illuminations eftir Britten eru ljóð Arthurs Rimbaud sett fyrir sópran og strengi, Oiseaux exotiques eftir Messiaen er byggt á söng framandi fugla og skrifað fyrir píanó, blásara og slagverk, og píanókonsert Ravels í G-dúr sækir í þjóðtónlist Baskalands. Þá hljóma atriði úr ballettinum Köngulóarveislunni eftir Albert Roussel. Tónleikarnir taka um tvær klukkustundir með hléi.
Efnisskrá
- Benjamin BrittenLes Illuminations
- Olivier MessiaenOiseaux exotiques
- Albert RousselKöngulóarveislan
- Maurice RavelPíanókonsert í G-dúr