← Allir tónleikastaðir
Tónleikahús · Kópavogur
Salurinn
Ísland átti engan sal byggðan fyrir tónlist fyrr en Salurinn var tekinn í notkun í Kópavogi 2. janúar 1999. Jakob Líndal og Kristján Ásgeirsson hönnuðu hann fyrir 292 manns, 183 á gólfi og 109 á svölum, og Stefán Einarsson og Steindór Guðmundsson stilltu ómtímann á 1,2 til 1,8 sekúndur. Um 7.500 trétappar standa út úr veggjunum og taka broddinn af tóninum, tjöld stilla það sem eftir stendur, og stólarnir eru gerðir svo salurinn hljómi eins tómur og fullur. Grenið er úr Skorradal, steinninn í gólfinu kom úr grunni hússins og rekaviður af Langanesi klæðir hluta vesturgluggans.
Staðsetning
- Heimilisfang
- Hamraborg 6200 Kópavogur
- Vefur
- salurinn.is ↗
Heimsóknir
- Aðgengi
- Í salnum eru sex hjólastólastæði og þau eru bókuð hjá starfsfólki Salarins. Úr anddyrinu við aðalinnganginn gengur lyfta niður í forsalinn, þar sem inngangurinn í salinn, fatahengið, salernin og barinn eru. Á neðri hæðinni er líka inngangur sem aka má bíl alveg upp að. Starfsfólk aðstoðar við hann. Sætaraðir 1 til 10 eru á neðri hæð salarins en raðir 11 til 17 eru á svölum og þangað er gengið upp stiga og þrep. Stæði fyrir hreyfihamlaða eru fyrir framan Tónlistarskóla Kópavogs, við Gerðarsafn og í bílakjallaranum gegnt Salnum, sem ekið er inn í frá Hamraborg og Hábraut.
Framundan

