Allir viðburðir

Kórtónlist

Norræn sönggleði, frá kirkju til kráar

Teikning af tómum árabáti sem stendur á strönd, dregin með gullnu striki á ljósan pappír.

Söngfjelagið tekur á móti Gamle Oslo kro- og kirkekor, blönduðum kór frá Ósló sem kennir sig við krár og kirkjur gamla bæjarins. Efnisskráin er bæði andleg og veraldleg og sótt til ólíkra tímabila, og norski kórinn syngur meðal annars lög af fertugsafmælistónleikum sínum. Kórarnir syngja fyrst hvor í sínu lagi og síðan saman, á norsku og íslensku. Söngfjelagið var stofnað árið 2011, og Lilja Dögg Gunnarsdóttir stjórnar því. Aðgangseyrir er 2.500 krónur, og miðar eru seldir við innganginn.

Flytjendur