
Þau þrjú sem skipa Trio JAM kynntust við nám í Tónlistarháskólanum í Stuttgart og hafa leikið saman frá árinu 2023, í Þýskalandi og Frakklandi. Tríóið blandar sígildri tónlist við djass, tangó og popp og segir frá, syngur og spinnur á tónleikum sínum. Tónleikarnir draga nafn sitt af Café Music eftir Paul Schoenfield, verki sem sækir í líf götukaffihúsanna. Þá hljóma Las cuatro estaciones porteñas eftir Astor Piazzolla, þar sem argentínskur tangó mætir sígildri tónlist, og Píanótríó nr. 2 eftir þýska tónskáldið Florian Willeitner, auk verks eftir Peter Ludwig og þekktra laga um árstíðirnar í útsetningum tríósins. María Qing Sigríðardóttir leikur á selló, Alice Compagnon á fiðlu og syngur og Jonathan Hanke leikur á píanó. Tónleikarnir taka um eina og hálfa klukkustund með hléi.
Flytjendur
- Trio JAMtríó
- María Qing Sigríðardóttirselló
- Alice Compagnonfiðla og söngur
- Jonathan Hankepíanó