← Allir viðburðir

Samtímatónlist

Tónlist Alexöndru Chernyshovu: Góðan daginn, frú forseti

Umsjón: Dream Voices

Alexandra Chernyshova stendur brosandi í lúpínubreiðu og breiðir út armana, foss í baksýn.

Alexandra Chernyshova, sem fæddist árið 1979 og ólst upp í Úkraínu og Rússlandi, hefur samið óperur, sinfóníur, kvikmyndatónlist og sönglög. Fyrir hlé verða frumflutt tíu atriði úr þriðju óperu hennar, Góðan daginn, frú forseti, í nýrri útsetningu fyrir raddir og píanó. Óperan er um Vigdísi Finnbogadóttur, fyrstu konuna í heiminum sem kjörin var forseti í lýðræðislegum kosningum, og var frumflutt árið 2021. Útsetningarnar eru úr nýútkominni nótnabók með átján atriðum úr óperunni. Eftir hlé verður frumflutt fyrsta sinfóníetta hennar, Magical Sky Iceland, fyrir sópran, kór og hljómsveit, frá 2015. Hún er í fjórum köflum, innblásin af norðurljósunum, og tileinkuð eiginmanni tónskáldsins, landslagsljósmyndaranum Jóni R. Hilmarssyni. Óperusöngvarar, óperukór og hljóðfæraleikarar koma fram.

Efnisskrá

  1. Alexandra ChernyshovaGóðan daginn, frú forseti, tíu atriði úr óperunni í nýrri útsetningu fyrir raddir og píanó
  2. Alexandra ChernyshovaMagical Sky Iceland, sinfóníetta fyrir sópran, kór og hljómsveit (2015)