← Allir listamenn

Bassaleikari

Jón Rafnsson

Bassaleikari, fæddur árið 1958 og ættaður frá Mosum í Skaftárhreppi. Hann kenndi sér sjálfur á rafbassa og lék á sveitaböllum á Suðurlandi, en frá 1976 til 1983 stundaði hann klassískt nám á fiðlu, píanó og kontrabassa við Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar. Síðan lærði hann á kontrabassa hjá Thorvald Fredin í Stokkhólmi og lauk tónlistarkennaraprófi frá Stockholms musikpedagogiska institut. Hann flutti heim frá Svíþjóð árið 1990 og bjó á Akureyri þar til hann fluttist til Reykjavíkur um það leyti sem hann, Gunnar Þórðarson og Björn Thoroddsen stofnuðu Guitar Islancio. Tríóið hélt fyrstu tónleika sína í Keflavík í október 1998 og lék djassútsetningar á íslenskum þjóðlögum. Hann hefur leikið djass, blús, rokk og klassík, með danshljómsveitum og í leikhúsum, bæði sem hljóðfæraleikari og tónlistarstjóri. Meðal erlendra djassleikara sem hann hefur leikið með eru Philip Catherine, Didier Lockwood og Nils Landgren. Frá 2010 hefur hann leikið í tríóinu DJÄSS með Karli Olgeirssyni og Kristni Snæ Agnarssyni. Tríóið hét Hot Eskimos fyrstu tíu árin og leikur djassútsetningar á íslenskum rokk-, pönk- og dægurlögum. Hann leikur einnig í tríóinu Delizie Italiane. Hann stofnaði og rekur útgáfuna JR Music.

Framundan

Aðrir flytjendur