Classical Iceland
Allir viðburðir

Kórtónlist

Vespers eftir Rakhmanínov: Kyrja og Yrkja

Umsjón: Hallgrímskirkja

Teikning af sjö kertum sem standa í röð og loga, dregin með dökkbláu striki á ljósan pappír.

Sönghóparnir Kyrja og Yrkja flytja Næturvöku Rakhmanínovs, Vespers, tuttugu söngvarar og enginn stjórnandi. Tónleikarnir eru á allra sálna messu og eru tileinkaðir fórnarlömbum stríðsins í Úkraínu og Palestínu. Gestum er boðið að tendra kerti í minningu ástvina fyrir tónleikana og að þeim loknum. Hóparnir starfa báðir undir listrænni stjórn Philips Barkhudarov og Sólveigar Sigurðardóttur, og tónleikarnir eru hluti af tónleikaröðinni Haust í Hallgrímskirkju. Húsið verður opnað hálftíma fyrir tónleikana.

Efnisskrá

  1. Sergej RakhmanínovNæturvaka, Vespers

Flytjendur