Tónlistardeild Listaháskóla Íslands heldur nemendatónleika í Hallgrímskirkju. Kirkjan og skólinn standa saman að þeim, og þeir gefa nemendum færi á að leika á hljóðfæri kirkjunnar: stóra Klais-orgelið og Frobenius-kórorgelið, sem nýlega var stækkað. Efnisskráin hefur ekki verið gefin upp og hverjir leika liggur ekki fyrir. Aðgangur er ókeypis á meðan húsrúm leyfir.