← Allir viðburðir

Kórtónlist

Jólatónleikar Varmárkórsins

Varmárkórinn heldur jólatónleika í Guðríðarkirkju. Þetta er kvennakór úr Mosfellsbæ, stofnaður árið 2019, og í upphafi sungu í honum einkum konur sem áður voru í Skólakór Varmárskóla. Guðmundur Ómar Óskarsson stjórnar og Jónas Þórir leikur á píanó. Á efnisskránni eru jólalög. Vel getur verið að einhverjar konur úr kórnum grípi í hljóðfæri eða syngi einsöng. Miðar eru seldir við innganginn gegn reiðufé eða millifærslu, því þar er enginn posi, og börn tólf ára og yngri fá frítt inn.

Flytjendur

Fleira framundan

Teikning af einni dúnfjöður sem liggur flöt, dregin með gullnu striki á ljósan pappír.

Sams konar viðburður, um svipað leyti

20:00Kórtónlist

Draumar

Langholtskirkja, Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík

Verð ekki birt