← Allir viðburðir

Kórtónlist

Fögnuður, kórtónleikar með Raust

Teikning af lagtertu á kökudiski á fæti, dregin með gullnu striki á ljósan pappír.

Kórinn Raust syngur undir stjórn Hrafnhildar Blomsterberg, sem verður sjötug tónleikadaginn. Hrafnhildur hefur í áratugi starfað með börnum og unglingum að kórstarfi í Hafnarfirði og margir kórfélaganna kynntust kórsöng hjá henni á unglingsárum, í Kór Flensborgarskólans og Flensborgarkórnum. Hún rak einnig kaffihúsið Súfistann ásamt fjölskyldu sinni. Á tónleikunum verður frumflutt verkið Til fundar við skýlausan trúnað eftir Hreiðar Inga Þorsteinsson, sem hann samdi fyrir hana og kórinn. Hreiðar samdi áður Rauða riddarann fyrir Hrafnhildi og Kór Flensborgarskólans árið 2005. Miðinn kostar 4.900 krónur.

Flytjendur