← Allir tónleikastaðir

Kirkja · Höfuðborgarsvæðið, Hafnarfjörður

Ástjarnarkirkja

Ástjarnarsókn var stofnuð árið 2001 og er ein yngsta sókn landsins. Fyrstu árin var messað í félagsheimili Hauka og síðan í tveimur færanlegum kennslustofum sem bærinn lagði söfnuðinum til. Arkís arkitektar unnu samkeppni um nýtt hús árið 2014 með tillögu Björns Guðbrandssonar, Huldu Sigmarsdóttur, Aðalsteins Snorrasonar og Egils Guðmundssonar, og Ástjarnarkirkja var vígð 8. október 2017. Kirkjusalurinn er fjölnota og honum má skipta og breyta með þremur felliveggjum. Tómas Bergþór Þorbjörnsson smíðaði altarisgráturnar, prédikunarstólinn og skírnarfontinn á árunum 2019 til 2022, og flygill frá Kawai, sem kirkjunni var gefinn, var tekinn í notkun 2023.

Ástjarnarkirkja, lágt steinsteypt hús með glerjuðum inngangi og skilti með nafni kirkjunnar á grasinu fyrir framan.

Staðsetning

Heimilisfang
Kirkjuvellir 1221 Hafnarfjörður

Framundan