← Allir tónleikastaðir
Kirkja · Höfuðborgarsvæðið, Kópavogur
Digraneskirkja
Digraneskirkja var teiknuð af Benjamín Magnússyni, byggð af Hallvarði S. Guðlaugssyni og vígð 25. september 1994. Arkitektinn segir sjálfur að hann hafi séð fyrir sér bát á hvolfi: hann risti upp kjölinn, lét böndin sjást áfram í gegnum gluggann og setti þakglugga eftir kilinum endilöngum til að kalla birtuna niður. Bylgjurnar í þakinu eiga að tákna öldur og mynda klæðninguna neðan í loftinu. Þjónustubyggingarnar liggja utan um kirkjuskipið eins og varnarmúr, sem hann sækir til gömlu torfkirknanna. Björgvin Tómasson smíðaði orgelið, sem er nítján radda og telur 1128 pípur, og skírnarskálin er eftir Jónínu Guðnadóttur.

Staðsetning
- Heimilisfang
- Digranesvegur 82200 Kópavogur
- Vefur
- digraneskirkja.is ↗
Orgel
- Smiður
- Björgvin Tómasson
- Raddir
- 19
Framundan
Ekkert er skráð hér sem stendur.
