← Allir listamenn

Píanóleikari

Ólafur Elíasson

Píanóleikari sem hefur leikið tónlist Johanns Sebastians Bach á flygilinn í Dómkirkjunni í Reykjavík á þriðjudagskvöldum frá árinu 2016, allt árið um kring. Hann var nemandi Rögnvaldar Sigurjónssonar, stundaði framhaldsnám í París hjá Vlado Perlemuter og síðan í Englandi, þar sem hann lauk einleikaraprófi frá Konunglega tónlistarháskólanum í Lundúnum árið 1994. Hann hefur haldið tónleika hér heima og erlendis, einkum á Bretlandi, og leikið inn á hljómdiska, þar á meðal píanókonserta eftir Bach og Mozart með London Chamber Group. Með Sigurði Bragasyni barítón hefur hann komið fram í Wigmore Hall í Lundúnum, Carnegie Hall í New York og Kennedy Center í Washington.

Framundan