← Allir listamenn

Fiðluleikari

Herdís Mjöll Guðmundsdóttir

Fiðluleikari, fædd árið 1997 og alin upp í Reykjavík. Hún hóf fiðlunám hjá Lilju Hjaltadóttur í Allegro Suzuki-skólanum, lærði síðan hjá Guðnýju Guðmundsdóttur og Sigrúnu Eðvaldsdóttur og lauk diplómaprófi frá Listaháskóla Íslands árið 2017. Sama ár lék hún einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands sem einn sigurvegara Ungra einleikara. Hún lauk bakkalárgráðu frá Oberlin Conservatory, þar sem Sigurbjörn Bernharðsson var kennari hennar, og meistaragráðu frá Yale School of Music árið 2023 hjá Augustin Hadelich. Við Yale var hún konsertmeistari Yale Philharmonia og lék á barokkfiðlu með Yale Schola Cantorum og Yale Voxtet. Árið 2020 frumflutti hún fiðlukonsert Liams Kaplan með Oberlin Contemporary Ensemble undir stjórn Tims Weiss. Sumrin 2023 og 2024 lék hún í Aspen Contemporary Ensemble og var einleikari hópsins þegar fiðlukonsert Missy Mazzoli, Dark with Excessive Bright, var frumfluttur í Norður-Ameríku árið 2024. Hún lék í Civic Orchestra of Chicago og leysti oft af í Sinfóníuhljómsveitinni í Chicago og Sinfóníuhljómsveit Íslands, og haustið 2025 tók hún sæti í annarri fiðlu Minnesota Orchestra. Í Reykjavík hefur hún haldið tónleika með eiginmanni sínum, Liam Kaplan, og með honum og Geirþrúði Önnu Guðmundsdóttur sellóleikara skipar hún Nýja tríó Reykjavíkur.

Framundan

Aðrir flytjendur