Classical Iceland
Allir listamenn

Kórstjóri

Steinar Logi Helgason

Kórstjóri Hallgrímskirkju frá haustinu 2021. Hann lærði á píanó í Tónmenntaskóla Reykjavíkur, Nýja tónlistarskólanum og Tónlistarskólanum í Reykjavík, tók kirkjuorganistapróf frá Tónskóla þjóðkirkjunnar og lauk síðar bakkalárgráðu af kirkjutónlistarbraut Listaháskóla Íslands undir handleiðslu Björns Steinars Sólbergssonar. Hann lauk meistaraprófi í hljómsveitarstjórn frá Konunglega tónlistarháskólanum í Kaupmannahöfn í lok árs 2020. Hann hefur stjórnað fjölda kóra og starfað sem organisti og píanóleikari, og var tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna árið 2021 ásamt Cantoque Ensemble sem tónlistarhópur ársins í flokki sígildrar og samtímatónlistar.

Framundan