← Allir listamenn

Tónskáld og hljómsveitarstjóri

Högni Egilsson

Tónskáld, söngvari og fjölhljóðfæraleikari sem hefur komið fram með hljómsveit sinni Hjaltalín frá árinu 2007. Hann lærði á fiðlu í æsku, söng um árabil með Hamrahlíðarkórnum og lauk tónsmíðanámi við Listaháskóla Íslands. GusGus fengu hann til liðs við sig til að semja, syngja og fara í tónleikaferðir. Árið 2017 kom út fyrsta sólóplata hans, Two Trains, þar sem hann skrifaði fyrir strengjasveit, karlakór og rafhljóð. Hann semur tónlist fyrir kvikmyndir, sjónvarp og leikhús og hlaut Edduverðlaunin sem tónskáld ársins árin 2021 og 2025. Hann hefur samið tónlistina við Kötlu, fyrstu íslensku Netflix-þáttaröðina, kvikmyndina Touch og bresku þáttaröðina King and Conqueror. Sinfóníuhljómsveit Íslands átti þátt í að flytja tónlistina við Kötlu og frumflutti fyrstu sinfóníu hans, Eternal Return.

Framundan