Sópran
Hallveig Rúnarsdóttir
Sópransöngkona sem hóf söngnám hjá Sigurði Demetz árið 1991, lauk áttunda stigi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík hjá Rut L. Magnússon árið 1998 og útskrifaðist með láði frá Guildhall School of Music and Drama í London sumarið 2001, þar sem kennari hennar var Theresa E. Goble. Hún hefur sungið mörg óperuhlutverk, flest hjá Íslensku óperunni, þar á meðal Donnu Önnu í Don Giovanni, Michaëlu í Carmen, Fiordiligi í Così fan tutte og Echo í Ariadne auf Naxos. Árið 2018 frumflutti hún titilhlutverkið í Gilitrutt eftir Hildigunni Rúnarsdóttur og í febrúar 2021 óperuna Traversing the Void eftir Hildigunni og Jo Truman í Hörpu. Hún hefur frumflutt mörg ný íslensk verk, meðal annars á Listahátíð í Reykjavík og Sumartónleikum í Skálholti. Hún hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sem söngkona ársins í sígildri og samtímatónlist árin 2013 og 2018. Hún hefur þrisvar verið tilnefnd til sömu verðlauna og tvisvar til Grímuverðlaunanna. Hún stofnaði atvinnusönghópinn Cantoque Ensemble og er listrænn stjórnandi hans, og hún kennir söng við Söngskóla Sigurðar Demetz og er aðstoðarskólastjóri þar.

Framundan
