Trommuleikari
Erik Qvick
Sænskur trommuleikari frá Edsbyn, fæddur árið 1973. Hann hefur búið á Íslandi frá 2000. Hann stundaði nám við Musikhögskolan Ingesund, þar sem Terje Sundby, Magnus Gran og Raymond Strid voru aðalkennarar hans, og lék síðan í Gautaborg með djass- og blústónlistarmönnum, meðal annars inn á plötur trompetleikarans Lasse Lindgren. Hann kom fyrst til Íslands sem skiptinemi árið 1996. Árið 2000 kom hann aftur til að leysa Matthías Hemstock af og settist hér að. Síðan hefur hann leikið allt frá djassi til dægurlaga og evrópskrar samtímatónlistar og meðal annars leikið inn á plötu með Kammersveit Reykjavíkur. Með Ásgeiri Ásgeirssyni og Agnari Má Magnússyni lék hann í orgeltríóinu B3, sem var tilnefnt til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2003 og 2004, og hann leikur á fyrstu sólóplötu Ásgeirs, Passing through, sem tekin var upp í New York. Hann hefur verið fastráðinn kennari við Tónlistarskóla FÍH frá 2000, hefur einnig kennt við Tónlistarskóla Akraness og Listaháskóla Íslands og kennir slagverk við Menntaskóla í tónlist. Árið 2015 lauk hann meistaraprófi í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands.
Framundan
Ekkert framundan.
Aðrir flytjendur
Saman á sviði: Beint áfram leikur Art Farmer og Jim Hall
Snorri Sigurðarson
Trompetleikari
Næst: 9. des.
Saman á sviði: Beint áfram leikur Art Farmer og Jim Hall
Beint áfram