← Allir listamenn

Gítarleikari

Ásgeir Ásgeirsson

Gítarleikari, fæddur árið 1972. Hann byrjaði á gítar tólf ára undir áhrifum rokks og blús, var sjálfmenntaður til sautján ára aldurs og lærði síðan á klassískan gítar í fjögur ár. Vorið 1999 útskrifaðist hann frá djassdeild Tónlistarskóla FÍH og nam síðan djassgítarleik við Conservatorium van Amsterdam hjá Henk Sprenger í tvö ár. Á þeim árum lék hann meðal annars með Jesse van Ruller og Michiel Borstlap. Á námsárunum heima lék hann með Sælgætisgerðinni og Sóldögg, þar sem hann var einn aðallagahöfundanna, og eftir heimkomuna með Páli Óskari Hjálmtýssyni. Með Agnari Má Magnússyni og Erik Qvick myndaði hann orgeltríóið B3. Fyrsta sólóplata hans, Passing through, var hljóðrituð í New York árið 2006 með Chris Cheek, Matt Penman og Erik Qvick. Með Hauki Gröndal stofnaði hann Skuggamyndir frá Býsans, sem leikur gríska, makedónska, búlgarska og tyrkneska tónlist, og hann hefur farið fjölda námsferða til Búlgaríu, Grikklands og Tyrklands. Á tónleikum leikur hann á tamboura, bouzouki, saz og oud. Á þremur plötum hefur hann fléttað íslensk þjóðlög saman við tónlist annarra landa: Two Sides of Europe með tyrkneskum tónlistarmönnum, Travelling through Cultures með búlgörskum og Persian Path, sem var tekin upp í Teheran, í Istanbúl og á Íslandi. Sigríður Thorlacius syngur á þeim öllum. Plata hans Crossing borders var valin djassplata ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum. Hann var bæjarlistamaður Kópavogs árið 2016 og kennir á rafgítar við Menntaskóla í tónlist.

Framundan

Ekkert framundan.

Aðrir flytjendur

  • Saman á sviði: Beint áfram leikur Art Farmer og Jim Hall

    Snorri Sigurðarson

    Trompetleikari

    Næst: 9. des.

  • Saman á sviði: Beint áfram leikur Art Farmer og Jim Hall

    Þorgrímur Jónsson

    Bassaleikari

    Næst: 2. des.

  • Saman á sviði: Beint áfram leikur Art Farmer og Jim Hall

    Erik Qvick

    Trommuleikari

  • Saman á sviði: Beint áfram leikur Art Farmer og Jim Hall

    Beint áfram