Eiríkur Hauksson
Íslenskur söngvari, þekktur alþjóðlega sem Eric Hawk, fæddur í Reykjavík 4. júlí 1959. Hann hefur verið búsettur í Noregi síðan 1988. Á Íslandi var hann meðlimur í rokk- og þungarokksveitunum Start, Drýsli og Þey, og árið 1985 söng hann lögin „Gaggó Vest“ og „Gull“ eftir Gunnar Þórðarson á plötunni Borgarbragur í tilefni 200 ára kaupstaðarafmælis Reykjavíkur, auk þess að taka þátt í laginu „Hjálpum þeim“ til styrktar hungruðum í Eþíópíu. Árið 1986 söng hann „Gleðibankann“ með Pálma Gunnarssyni og Helgu Möller í hópnum ICY, fyrsta íslenska framlaginu í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Sama ár fluttist hann til Noregs og gekk til liðs við norsku þungarokkshljómsveitina Artch, sem sendi frá sér plöturnar Another Return to Church Hill og For the Sake of Mankind við góðar undirtektir í Bretlandi og Bandaríkjunum. Hann söng aftur í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva árið 1991, nú fyrir hönd Noregs með hljómsveitinni Just 4 Fun og laginu „Mrs. Thompson“, og árið 2007 fyrir hönd Íslands með laginu „Valentine Lost“ (á íslensku „Ég les í lófa þínum“). Hann hefur sungið á plötu sænsku dauðarokksveitarinnar Gardenian árið 1999, túrað um Evrópu með Ken Hensley úr Uriah Heep árið 2005 og verið söngvari norsku prog-sveitarinnar Magic Pie árið 2007. Hann er kennari að mennt.
Framundan

Las Vegas Christmas Show 2026
Gamla bíó, Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík
6.900 kr.≈ 50 EUR≈ 55 $≈ 79 CAD≈ 42 GBP≈ 376 DKK
