Daníel er hljómsveitarstjóri og tónskáld sem hefur starfað með Sinfóníuhljómsveit Íslands í rúman áratug. Hann var staðarlistamaður hennar árin 2015 til 2018 og aðalgestastjórnandi árin 2019 til 2021. Verk hans hafa verið frumflutt af hljómsveitum erlendis undir stjórn Gustavo Dudamel, Esa-Pekka Salonen og John Adams. Á starfsárinu 2026/27 stjórnar hann Klassíkinni okkar, tónleikum Daða Freys með hljómsveitinni á Airwaves og áskriftartónleikum með fiðluleikaranum Johan Dalene í verkum eftir Sibelius og Adès, og stýrir auk þess hljóðritunum fyrir útgáfuna Sono Luminus.