Cantoque Ensemble
Atvinnusönghópur sem telur átta til tólf raddir og var stofnaður árið 2017 upp úr samstarfi við barokkhljómsveitirnar Höör Barock og Camerata Öresund, sem hópurinn söng með á Íslandi, í Danmörku og í Svíþjóð. Þeir tónleikar hlutu tilnefningu til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem tónlistarviðburður ársins 2017. Árið 2018 söng hópurinn kantötur eftir Bach á Sumartónleikum í Skálholti með Bachsveitinni í Skálholti undir stjórn Andreas Spering. Árið eftir flutti hann Jóhannesarpassíu Bachs með Barokkbandinu Brák undir stjórn Steinars Loga Helgasonar. Sumarið 2020 söng hópurinn nýja íslenska tónlist í Skálholti og á Sönghátíð í Hafnarborg. Samstarfinu við Camerata Öresund var haldið áfram árið 2021, þá einnig með Ensemble Nylandia, og þeim tónleikum var sjónvarpað frá barokkhátíðinni BarokkiKuopio í Finnlandi. Árið 2023 söng hópurinn messu Franks Martin með Ensemble Choeur3 undir stjórn Abeliu Nordmann í Sviss, og árið 2024 flutti hann verk Þorkels Sigurbjörnssonar á Myrkum músíkdögum. Stofnandi og listrænn stjórnandi er Hallveig Rúnarsdóttir.
Framundan
