Allir listamenn

Hljómsveitarstjóri

Bar Avni

Hljómsveitarstjóri sem vann La Maestra-keppnina í París árið 2024 og hóf í kjölfarið samstarf við Paris Mozart Orchestra. Hún er menntaður slagverksleikari og lærði hljómsveitarstjórn hjá Yoav Talmi, Martin Sieghart og Ulrich Windfuhr og hefur verið aðstoðarmaður Gustavos Dudamel og Klausar Mäkelä. Hún hefur nýlega stjórnað Útvarpshljómsveitinni í Köln og Fílharmóníusveitinni í Varsjá. Fyrsta plata hennar kom út hjá Alpha Classics með Þjóðarhljómsveitinni í Bordeaux. Á síðasta starfsári stjórnaði hún heimsfrumflutningi á The White Book eftir Lauru Bowler hjá Sinfóníuhljómsveitinni í Lundúnum. Barbara Hannigan flutti verkið, sem sú hljómsveit pantaði ásamt Sinfóníuhljómsveitinni í Gautaborg og Fílharmóníusveit Kaupmannahafnar.

Framundan