← Allir viðburðir
Sinfóníuhljómsveit Íslands 2026–27 · Sinfóníutónleikar
Arnheiður syngur Mahler
Umsjón: Sinfóníuhljómsveit Íslands
Arnheiður Eiríksdóttir syngur Söngva förusveinsins eftir Mahler og Urlicht úr annarri sinfóníu hans. Hún var valin rísandi stjarna ársins á Alþjóðlegu óperuverðlaununum árið 2024. Tónleikarnir hefjast á Karnival-forleik Dvořáks, og eftir hlé hljómar fyrsta sinfónía Brahms, sem hann var yfir tuttugu ár að ljúka við. Tomáš Hanus, aðalgestastjórnandi hljómsveitarinnar, stjórnar. Tónleikarnir taka um tvær klukkustundir með hléi.
Efnisskrá
- Antonín DvořákKarnival, forleikur
- Gustav MahlerSöngvar förusveinsins
- Gustav MahlerUrlicht úr sinfóníu nr. 2
- Johannes BrahmsSinfónía nr. 1
Flytjendur
- Arnheiður Eiríksdóttirmezzósópran